PTassistance

Gerum skjólstæðinginn virkari og sjúkraþjálfarann skilvirkari.


Eiginleikar


Sérsniðnar æfingaáætlanir


Mörg hundruð tilbúnar, stigskiptar æfingaáætlanir, flokkaðar eftir líkamshluta og tegund meiðsla.


Myndbönd af öllum æfingum


Hverri æfingu fylgir myndband sem sýnir rétta framkvæmd æfingarinnar.     


Spjallborð



Auðveld samskipti milli skjólstæðings og þjálfara.


Kerfi sem er þægilegt og einfalt

Hægt er að deila tilbúinni æfingaáætlun með skjólstæðing á nokkrum mínútum, eða búa til sína eigin úr safni af yfir 2000 æfingamyndböndum PTassistance

Kennslumyndbönd og fræðsla

Skýr kennslumyndbönd á YouTube sem sýna hvernig þú finnur tilbúna æfingaáætlun, býrð til áætlun, finnur æfingar og deilir beint í síma.


Umsagnir sjúkraþjálfara

„Eftir að hafa prófað ýmis hugbúnaðarkerfi fyrir heimaæfingar og endurhæfingaráætlanir fyrir skjólstæðinga valdi ég að nota PTassistance. Kerfið er einfalt í notkun, býður upp á öfluga virkni og fjölda tilbúinna áætlana sem ég get annað hvort aðlagað eða notað strax. Viðmótið er faglegt og passar vel við ímynd fyrirtækisins míns. Þjónustuteymið er einnig afar hjálplegt og leggur sig fram um að þróa kerfið í takt við mínar þarfir, sem skiptir mig miklu máli til lengri tíma litið.“


Jason Palmer, fyrrum yfir sjúkraþjálfari knattspyrnuliðs Chelsea.

„Ég nota PTassistance bæði á stofu og með íþróttafólki, líka þegar skjólstæðingar geta ekki mætt og þurfa að fylgja prógrammi í appinu. Tilbúnu prógrömin spara mér mikinn tíma og hjálpa sérstaklega þegar ég er að vinna með meiðsli sem ég sé ekki á hverjum degi – ég finn prógramm og aðlaga það að hverjum einstaklingi. Það skiptir mig líka miklu máli að kerfið sé á mörgum tungumálum. Myndbönd og skýrar leiðbeiningar bæta framkvæmd æfinga og meðferðarheldni, og samskipti í appinu gera eftirfylgd mun auðveldari. Ég mæli hiklaust með PTassistance.“


Tinna Mark Antonsdóttir, sjúkraþjálfari
Klinik 2.0 (Svíþjóð), KDFF Damallsvenskan, Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu.

„Ég nota PTassistance til að senda skjólstæðingum heimaæfingar milli meðferðartíma. Það sparar mikinn tíma að geta vistað æfingaáætlanir, fundið þær fljótt aftur og endurnýtt – án þess að byrja alltaf frá grunni. Ég get svo auðveldlega sérsniðið fyrir hvern og einn með því að breyta æfingum, endurtekningum og álagi, jafnvel eftir að áætlun hefur verið send. Myndböndin og möguleikinn á að bæta við texta gera skjólstæðinga öruggari í framkvæmd, og „tékklisti“ virkni eykur meðferðarheldni. Ég mæli með PTassistance fyrir bæði einfaldleika, gæði æfinganna og tímasparnað.“


Guðrún Baldvinsdóttir, sjúkraþjálfari
Efling sjúkraþjálfun ehf Akureyri.

„PTassistance gerði endurhæfinguna mína mun einfaldari. Ég þurfti aðeins að hitta sjúkraþjálfarann minn þrisvar sinnum og fékk restina af þjálfuninni í gegnum kerfið. Skýrar æfingamyndbönd, stigvaxandi æfingaáætlanir og netstuðningur hjálpuðu mér að halda fókus og ná frábærum árangri eftir meiðsli. Það var eins og að hafa sjúkraþjálfara með mér hvert skref á leiðinni. Þægindin við að hafa aðgang að sjúkraþjálfun og endurhæfingu í fjarþjónustu gerðu mér kleift að vinna með framúrskarandi sjúkraþjálfurum, sama hvar ég var stödd.“


Deirdre Ryan, frjálsíþróttakona, Írland.


Áskriftarleiðir

Stök áskrift.

€35/mánuði

Áskrift 5-9 þjálfarar á sömu stofu.

€30/mánuði

Áskrift 10+ þjálfara á sömu stofu.

€25/mánuði